“I am a Bear of Very Little Brain, and long words bother me.”
20.10.2006 22:30:22 / guðrún lísbet

toodeloo

í dag kveð ég blog.central.is og færi mig yfir á  http://www.gudrunlisbet.blogspot.com/ , þar sem þið getið verið enn duglegri að heimsækja mig...

þetta blogg ekki alveg að gera sig, ég hreinlega "kunnti" ekki að setja myndir á þetta blogg, og sumar myndir eru bara þannig að þær verða með góðu eða illu að rata á veraldarvefinn...

sjáum svo til, ég ætla allavega að máta þetta...


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 03:18:28 / guðrún lísbet

sunnudagur í vitastígshareminu

stiklað á stóru yfir atburði sunnudagsins 1. októbers 2006:

04:30:  skriðið heim úr bænum eftir mikla gleði með bekkjarfélögunum, sem eru náttúrulega langbest.  ekki laust við að tár hafi hrunið á hvarm þegar dj á hressó tók upp á því að spila hana "nínu" okkar, sem hefur hvatt okkur til dáða í gegnum gervallt hjúkrunarnámið.

11:00:  fyrsta rumsk á morgni eftir töluvert þyrsta gleði næturinnar

11:30:  dröslast á lappir og út í sólina.  ekkert eins gott og göngutúr um miðbæinn á sunnudagsmorgni.  framkvæmdagleði af illri nauðsyn, maður verður jú að aðhafast eitthvað ef maður ætlar að sofa eitthvað fyrir fyrirhugaða næturvakt.

12:30:  snúið aftur á vitastíginn, þar sem sambýlisfólk er komið á stjá og hefur hafið hreinsunarstörf eftir tvöfalda gleði gærkveldsins.  ekki nóg með það að hjúkkurnar hafi hist og gætt sér á southern comfort kokteilum og vitaborgurum fyrir brottför í annað partí í grafarvogi, heldur tóku jarðfræðingar "sambýlismannsins" til við gleðina eftir að hjúkkurnar höfðu yfirgefið samkvæmið.  sönnunargögn bentu til þess að þeir hafi nú verið eilítið þyrstari en hjúkkurnar.  "sambýliskonu" færðar árnaðaróskir í tilefni afmælisdags og lýst yfir ánægju yfir því að vera ekki lengur eini 26 ára ellismellurinn á staðnum.

13:00: aftur, af illri nauðsyn hafist handa við matargerð.  ansans vesen að hafa farið á vitabarinn í gær, samviskan leyfir hreinlega ekki tvo vitaborgara á innan við sólarhring.  því var notast við útlitsgölluðu baunabuffin frá velgjörðarmönnum í ársölum í kópavogi, títt séð góðmeti á borðum á vitastígnum.  að venju voru áhugaverðar samræður við sambýlinga, þar sem sambýlismaður óskapast m.a. yfir ólifnaði sambýliskvenna og undrast á sérkennilegum marbletti sem myndast hafði á læri sambýliskonu/ kærustu hans eftir brölt næturinnar með vinkonu hennar og tveimur annars ágætum bretum :$

13:30:  baunabuff snædd með bestu lyst yfir byrjun á harry potter and the philosopher´s stone.  klárlega verður maður að hafa eitthvað í gangi þegar borðað er, varla er hægt að ætlast til þess að við tölum saman út í hið óendanlega 8|

14:00:  lagst til hvílu og hugsanir leiddar til ágæti þeirrar hugmyndar að fara í göngutúr í morgun, þar sem augnlokin reyndust ansi þung.  eyrnatöppum troðið á tilætlaðan stað því reynslan hefur sýnt sig að miðdegislúrar eru ekki framkvæmanlegir án þeirra, hvort sem á við sambýlisfólk, fílahjörð á efri hæð eða grandalausa vegfarendur á vitastígnum.

17:00:  vaknað eftir ljúfan lúr við kökuilm.  sambýliskona hafði blásið til veislu, "fika" af bestu gerð.  góður félagskapur og m.a.s. lifandi tónlist frá áðurnefndum bretum.  áhugaverðar samræður í góðra vina hóp geta varla klikkað.

20:45:  hoppað upp í bifreið ágústu hjúkku og boltafélaga.  lýst einlægri ánægju yfir nýlegri fjárfestingu stelpunnar í linsum.  þótt ég hafi nú kannski ekki kunnað að skammast mín og hlegið yfir glóðarauganu sem ég veitti henni í boltanum rétt fyrir páskana, sem má þó að hluta til rekja til þess að hún var einmitt með gleraugun á nefinu, kæri ég mig síður um að endurtaka leikinn ;)

21:00:  "kick-off" í fjölnishúsinu.  ekki minn besti dagur í dag, ekki laust við að örlaði á ógleði eftir kræsingar afmæliskaffis sambýliskonu.  fyrir áhugasama, þá hefur "klúbburinn" hafist handa við heimasíðugerð, hægt er að berja ósköpin augu á www.blog.central.is/gelluboltinn.  (ég er búin að segja link og allt:)  )

23:00:  mætt til vinnu á blóðlækningadeild landspítala-háskólasjúkrahúss, 11G.  að sjálfsögðu ferskleikinn uppmálaður eftir sprikl dagsins, að ég tali nú ekki um magn innbyrgðs sykurs.

 

já krakkar, svona er að vera ég.  að mínu mati bara skrambi góður sunnudagur að baki.  ég verð nú samt að viðurkenna að minn raunverulegi persónuleiki hefði mun fremur kosið að vera hrjótandi undir sæng akkúrat einmitt núna en gráðugi peningapúkinn sem tekið hefur við völdum fram í janúar er skelfilega ánægður með allt sem heitir aukavaktir, hvað þá aukanæturvaktir.  og maður lifandi, hversu gott verður að skríða í bólið kl. 9 í fyrramálið, hlakkandi yfir myglunni í sambýlisfólki sem þarf að þræla allan daginn meðan ég sef.  já, ég er ekki frá því að það sé bara gott að vera ég...


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.09.2006 04:39:39 / guðrún lísbet

jáammælídag!!!

hollráð dagsins:

vinna næturvakt á aðfararnótt afmælisdags og nýttu afmælisdaginn til þess að snúa sólarhringnum við.  þá áttu afmæli í svoooo langan tíma ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

23.09.2006 02:48:50 / guðrún lísbet

end of an era

blogga já... e-ð grunnt á þessu hjá mér. en hér er ég núna og hef góða afsökun fyrir bloggleysi, netsambandsdrama af hæstu gráðu hlýtur að duga sem skrópsmiði fyrir bloggfjarveru. varla þarf maður læknisvottorð? :$

en jú, heilmikið að gerast. ég er flutt frá eggertsgötunni og orðin miðbæjarrotta, og reynist það vera sérdeilis prýðilegt að búa þarna í nafla alheimsins. ég er svona manneskja sem gerir alltaf drama í kringum öll svona tímamót, held alltaf að svona hlutir verði "end of an era" eins og monica nokkur geller sagði svo eftirminnnilega, en svo ganga hlutirnir alltaf voða smoothly og það er alltaf eins og ég hafi aldrei gert neitt annað heldur en það nýja sem ég er að gera eða það gamla sem ég var að hætta að gera. ef það meikar e-n sens :$ eins og t.d. að flytja frá eggertsgötunni. eftir 3 ára búsetu þar var það auðvitað "end of an era" og var ég farin að syrgja notalegu litlu holuna mína löngu áður en ég flutti út, en hvað gerðist svo? jú, ég hef ekki einu sinni leitt hugann að fyrri híbýlum mínum og sakna þess alls ekkert átakanlega að þvælast í gegnum vatnsmýrina daglega á leið minni eitt eða annað, veðurbarin og í ótta um líf mitt eftir árásir frá manndrápsgæsum sem ala þar gjarnan manninn (eða gæsina? :$ )...

undantekningin frá reglunni er þó að sjálfsögðu til staðar. að klára skólann var einnig svona frekar "major end of an era", og er ég satt að segja ekkert að jafna mig á þeim tímamótum. æji, hvað ég væri til í að vera í skóla ennþá. skítt með verkefni og próf, fannst það aldrei svo mikið mál og hafði jafnvel gaman af. skólinn var lífið. en núna er víst lífið skólinn. ekki laust við að maður hafi gott af því, öðruvísi lærdómsríkt og auðvitað hefur það sína kosti. stefnan er tekin á vinnualkaástand næstu 4 mánuði, þar til reisan mikla skellur á. þá verður reisan lífið, og ekki er það nú verra...

í nótt lifi ég lífinu í vinnunni. næturvaktir, alltaf frískandi. í það minnsta gefa þær mér tíma til að blogga;) þetta tiltekna blogg-form er hins vegar farið að bögga mig eilítið, er með slatta af snilldarmyndum sem væri nú skemmtilegt að deila hérna en gengur ekkert að koma þeim inn :( spurningin er þá, á maður að skipta um blogg? og hvaða blogg er nógu idiot-proof? já, maður spyr sig. lífið krefst erfiðra ákvarðana...

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.08.2006 22:42:48 / guðrún lísbet

sneaky inc.

hér koma dulkóðuð skilaboð til afþreyingarþyrsts hjúkrunarfræðings við skyldustörf í útnára íslands:

penninn skrifaði bara ágætlega, allavega nógu vel til þess að ekki var þörf fyrir sjúkrabíl ;)  er ekki bara best að leyfa lyklinum að liggja aðeins á gluggakistunni og sjá hvort að það sé góður staður fyrir hann eða ekki?


» 7 hafa sagt sína skoðun

06.08.2006 02:21:55 / guðrún lísbet

auðuns family outing

þá er ég snúin aftur í siðmenninguna eftir útstáelsi númer 2 þetta sumarið. í þetta sinn var það jómfrúarferð "the auðuns´ family" gönguklúbbsins eins og ágætur maður hefði án efa orðað það. ferðinni var heitið í hinar rómuðu víkur á austfjörðunum og sviku þær hreint ekki. ég er hins vegar farin að halda að ég sé undir áhrifum einhvers konar veðurfarsbölvunar þar sem ég get aldrei farið neitt án þess að rigni duglega á mig og gott betur til, og fundum við heldur betur fyrir þeirri bölvun. við þurftum í raun að breyta ferðatilhögun lítillega vegna ofankomu. satt að segja er mig farið að gruna alla austfirðinga um samsæri og á bara bágt með að trúa því að hafi verið gott veður þarna í allt sumar eins og allir hafa haldið fram. þykir mér heldur líklegra að það hafi verið útsala á brúnkukremi í kaupfélaginu og allar sólarmyndir hafa verið "fiffaðar" :$ rigningin varð allavega til þess að ekki sá ég loðmundarfjörðinn í þetta sinn, hann verður að bíða betri tíma...

við fengum þó bongóblíðu seinasta daginn enda hlaut að koma að því að "hitabylgjan" margumrædda myndi láta sjá sig, og voru margir skemmtilega rauðir og bleikir eftir þann daginn. það var alveg ómetanlegt að hafa séð stórurð, en það var gönguleiðin þann daginn, skarta sínu fegursta í veðurblíðunni enda vorum við orðlaus yfir náttúrufegurðinni. þvílík perla! hún fær allavega toppeinkunn hjá mér og á ég án efa eftir að drösla sem flestum þangað til þess að upplifa þennan magnaða stað...

anyways, frábær ferð með frábæru fólki og var myndavélin að sjálfsögðu notuð óspart. myndir munu rata á veraldarvefinn innan skamms, stay tuned...


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.07.2006 18:31:04 / guðrún lísbet

svaðilförin svaðalega

á myndasíðunni er nú að finna myndir frá svaðilförinni svaðalegu sem farin var með vinnufélögum og fleiri góðu fólki um daginn.  hún var reyndar ekki til surtseyjar, nei, heldur á hálendi íslands.  hallað var höfði í hattveri, við strútslaug og við brytalæki á leið okkar frá landmannalaugum, yfir torfajökul og meðfram hólmsárlóni.  meðal myndanna er ekki að finna skot af mér hlaupandi um hattver á ullarnærfötunum að brasa við að spelka saman brotnar tjaldsúlur og að gera mitt besta til þess halda tjaldinu frá því að fjúka, eða þrammandi á hryggjum í áttina upp á torfajökul, þess fullviss að nú myndi bráðum líða að því að kári vindur myndi feykja mér um koll, en það er ekki þar með sagt að það hafi ekki skeð...

engu að síður, frábær ferð með frábæru fólki um einstaka náttúrufegurð.  og jökullinn var frábær.  ég hafði aldrei áður stigið fæti á jökul en það var mjög gaman að ganga þarna yfir torfajökul.  ég hreinlega get ekki lýst tilfinningunni, en í alla staði mjög frískandi og endurnærandi.  ég þurfti að hafa mig alla við að minna mig á að ég hafði tekið ákvörðun fyrr um daginn að mér væri óhætt að vera í vondu skapi, þar sem ég var gjörsamlega svefnvana eftir ævintýri næturinnar í hattveri og þar að auki blaut og köld inn að beini.  og sú barátta tapaðist að sjálfsvögðu fljótlega eftir að á jökulinn kom. 

ferðafélagarnir leystu mig út með heimaverkefni fyrir næstu göngu, sem væntanlega verður farin næsta sumar.  til þess að ég geti nú tekið þátt í samræðum á sómasamlegan hátt er mér ætlað að gifta mig og kaupa mér bíl. ojæja, ég hef alveg árið :$  seinni tíma vandamál...


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.07.2006 23:00:58 / guðrún lísbet

márus - best í heimi

reykjavík er kannski blaut þetta árið en bloggið mitt þjáist hins vegar af rífandi þurrktíð.  en æji, stundum hefur maður bara ekkert að segja.  márus vinur minn stakk reyndar upp á því að ég gæti nú alltaf bara bloggað um það hvernig hann sé langbestur en ég vísaði því nú fljótlega frá þar sem  það væri bara eins og að blogga um ágæti súkkulaðisjeika, maður þarf ekkert að greina það í öreindir sem hreinlega segir sig sjálft...

en já, ég er víst orðin fræðingur :$  magnaður andskoti, að vera fræðingur, en það venst mjög vel.  eins og flestir upplifði ég smá aðlögunartíma, þar sem ég kynnti mig iðulega "óvart" sem hjúkrunarnema og fannst ég stundum vera að stelast þegar ég á annað borð mundi að ég er ekki nemi lengur og kynnti mig sem hjúkrunarfræðing.  en þetta er allt að koma, núna valsa ég um, voða montin með nýja fína hjúkkuúrið mitt og nafnspjaldið sem staðfestir stöðu mína sem fræðingur.  magnað.  ég var búin að gefa það út hérna áðan að márus sé bestur í heimi en ég er ekki frá því að það sé líka best í heimi að vera hjúkka...

í tælandsreisunni svo oft áðurnefndri sleppti ég mér aðeins í bókakaupum, enda verðið á kiljunum þarna ekkert annað en brandari.  undanfarið er ég búin að vera að vinna í því að lesa ósköpin og rambaði á þessa málsgrein í einni af bókunum:

an oncology ward is a battlefield, and there are definate hierarchies of command.  the patients, they´re the ones doing the tour of duty.  the doctors breeze in and out like conquering heroes, but they need to read your child´s chart to remember where they´ve left off from the previous visit.  it is the nurses who are the seasoned sergents - the ones who are there when your baby is shaking with such a high fever she needs to be bathed in ice, the ones who can teach you how to flush a central venous catheter, or suggest which patient floor kitchen may still have popsicles left to be stolen, or tell you which dry cleaners know how to remove the stains of blood or chemotherapies from clothing.  the nurses know the name of your daughter´s stuffed walrus and show her how to make tissue paper flowers to twine around her iv stand.  the doctors may be mapping out the war games, but it is the nurses who make the conflict bearable.

ókei, soldið bandarískt kannski.  en ég get vel lifað með því að vera seasoned sergent...


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 21:21:27 / guðrún lísbet

i´m back

já það er rétt, kæru þegnar.  ég hef snúið aftur frá tælandi, landi hinna frjálsu.  ferðasaga hér er að mínu mati ógjörningur, hvernig er mögulegt að koma slíku í orð?  ferðin var frábær í alla staði, og það sem ekki frábært er að sjálfsögðu löngu gleymt...

myndavélin góða sem hinn annars ágæti bróðir minn gaf mér sem snemmbæra útskriftargjöf var nýtt í hið ítrasta þótt ég segi sjálf frá.  ég er kannksi engin hildur rakel en ég tók þó slatta af myndum og hef í mikilli framkvæmdagleði sett þær flestar á myndasíðuna góðu þar sem áhugasamir geta barið þær augum.  einhverra hluta vegna eru þær í undarlegri tímaröð og hef ég enga góða skýringu á því.  en hey, hvað er smá tímarugl á milli vina?


» 10 hafa sagt sína skoðun

10.06.2006 11:11:11 / guðrún lísbet

mai tai

er ekki vid haefi ad vekja ofund grandalausra islendinga i rigningunni a islandi a hinum konunglegu adstaedum minum herna i thailandi?

jahhh.... ef eg bara nennti....


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.05.2006 21:52:08 / guðrún lísbet

solong and thanks for all the fish...

það eina sem nú stendur á milli mín og titilsins ,,hjúkrunarfræðingur" er eitt stykki útskriftarferð, sem hefst nú á laugardaginn, og eitt stykki útskriftarathöfn, sem fer fram þann 24. júní næstkomandi.  en ég reikna fastlega með því að allt sem ég hef lært á undanförnum 4 árum eigi að koma mér sómasamlega í gegnum bæði.

annars er gaman að segja frá því að loksins, loksins eru komnar myndir á myndasíðuna mína af sumarbústaðagleðinni góðu sem farin var í kjölfar prófloka í apríl.  það er eins og mig minni að ég hafi átt að taka það fram að allar sígarettur sem kunna að sjást á þessum myndum eru klárlega ekki alvöru heldur hef ég af illgirni minni photo-sjoppað þær inn til þess að sverta mannorð félaga minna :klikk:  einnig vil ég vara alla undir 18 ára aldri og eins þá sem eru viðkvæmar sálir við seinustu myndina um leið og ég firri mig allri ábyrgð á þeirri annars ágætu mynd.  við getum kannski bara haft það eins konar gestaþraut hver á heiðurinn af henni.  og gettu nú :$

annars bið ég ykkur vel að lifa á meðan ég spóka mig í tælandinu, það væri gaman að segja að hugur minn verður hjá ykkur en það væri bara ekki satt.  hann verður klárlega annars staðar...


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.05.2006 23:22:41 / guðrún lísbet

jassko

svo framarlega sem: :$

  • eldingu lýstur ekki niður í tölvuna hennar helgu
  • internetið hættir ekki á dularfullan hátt að vera til
  • óargadýr af einhverjum toga kemur læðist ekki í skjóli nætur inn í íbúðina hennar helgu og hakkar í sig útprentuðu eintökin af lokaritgerðinni okkar
  • við helga missum ekki báðar alla fingurna og verðum ófærar um að pikka inn lokabreytingar á meistaraverkinu

þá er eitt stykki b.s. gráða í hjúkrunarfræði í höfn...


» 10 hafa sagt sína skoðun

07.05.2006 19:34:19 / guðrún lísbet

never again?

í kjölfar gleði gærkvöldsins með mjaðmabombunum fc og dagsins í dag sem ekki var nýttur til útiveru kemst ég að þeirri niðurstöðu að undir engum kringumstæðum verða tekin skot í tælandsreisunni.  sérstaklega ekki gajolskot enda er ég sannfærð um það að það glundur sé runnið undan djöflinum sjálfum, eða einhverjum þaðan af verri... 

þegar litið er til framtíðar er e.t.v. athugandi að færa hitting mjaðmabombanna aftur í sitt upprunalega saumaklúbbsform, þar sem eina ástæðan fyrir því að nokkur fær illt í magann er sú að sá hinn sami borðaði of mikið af betty crocker súkkulaðiköku.  þó má kannski endurskoða það þegar líkamlegt ástand er betra því að það var nú skrambi gaman...


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 13:35:05 / guðrún lísbet

góðar fréttir :)  kúlið er fundið.  það fannst á botninum á bjórdós í miðju hópfaðmlagi og fjöldasöng með þeim yfirlýsingum að lífið sé yndislegt í óvissunni á indriðastöðum ;)  hversu miklir snillingar eru þessir vitleysingar sem maður kallar bekkjarfélaga sína?  áhugasamir geta barið ósköpin augum á myndasíðunni...

anyhjús, ég er orðin mun betur stemmd undir komandi próflestur.  það verður heldur betur rokkað í eirberginu um páskana :$


» 12 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 00:24:30 / guðrún lísbet

að gefa skít

í dag skeit fugl á gluggann minn.  ekki efst, ekki neðst og svo sannarlega ekki til hliðanna heldur beint á miðja rúðuna.  og það er ekki hlaupið að því að þurrka ósköpin af svona á annarri hæð.  týpískt.... 

ég get ekki annað en leitt hugann að því hversu lýsandi þetta er fyrir líf mitt undanfarna daga.  hvað get ég sagt um síðustu daga?  tilfinningarússíbani.  tvímælalaust.  uppnám, dofi, undrun, reiði, sársauki.  uppreisn æru.  og meira og magnaðra uppnám.  og hvað gerir maður þá?  félagar og þjáningabróðir, matur, drykkur, drykkur, drykkur, drykkur, hlátur, grátur, vaka, svefn.  væl og vangaveltur í fleiri, fleiri eyru. samúð og skilningur á viðbúnum og óvæntum öxlum.

hvað get ég sagt?  svona er lífið?  lífið er ólgusjór? eitthvað klisjukennt sem segir manni í raun og veru ekki neitt.  niðurstaðan er alltént sú að ég er komin yfir hjúkkunemanostalgíuna og er einstaklega, ofsalega tilbúin til að útskrifast.  og það var svosum alveg kominn tími á það að ég klári eitthvað með hvelli....

maður þarf ekkert að vita um hvað málið snýst.  bara senda mér góða strauma.  já, og láta mig vita ef "kúlið" mitt finnst.  ég tapaði því gjörsamlega við gerð curator-blaðsins og ég gæti vel notað það núna og í komandi prófatörn...


» 11 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10